Bæjarins Beztu bauð til veislu
June 28, 2013
Í gær 27 júní ákváðum við hjá Bæjarins Beztu að bjóða nokkrum valinkunnum hópum til veislu fyrir utan bækistöðvar okkar á Seltjarnarnesi. Að þessu sinni ákváðum við að bjóða:
- Veislan
- Unglingavinnan
- Leiðarljós
Það var greinilegt að fólk var svangt þennan rigningardag, þar sem 200 pylsur fóru á rúmega klukkutíma. Við viljum nota tækifærið og þakka þeim kærlega fyrir sem mættu og það er aldrei að vita nema Ferðavagn Bæjarins Beztu poppi upp aftur á næstu mánuðum og bjóði hungruðu fólki upp á dýrindis veitingar.